© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.9.2006 | 13:09 | oddur | FIBA
Spánverjar heimsmeistarar í körfuknattleik
Spánverjar voru bestir á HM
Spánverjar urðu í dag heimsmeistarar í körfuknattleik. Þeir sigruðu Grikki í úrslitaleiknum 70-47. Spánverjar sýndu frábæra liðsheild á mótinu, þeir léku einstaklega vel á bæði í sókn og vörn allt mótið og fóru í gegnum keppnina án þess að tapa leik.

Grikkir voru taldi sigurstranglegri í leiknum í dag en þeir höfðu lagt Bandaríkjamenn í undanúrslitum á mjög sannfærandi hátt. Þar léku allir leikmenn Grikkja mjög vel. Spánverjar urðu hins vegar að leika án síns besta leikmanns, Pau Gasol, því að hann braut ristarbein í undanúrslitaleiknum við Argentínu.

Þegar leikurinn hófst voru það þó Spánverjar sem að voru sterkari aðilinn. Þeir léku ótrúlega góðan varnarleik og röðuðu svo niður þriggja stiga körfum. Spánverjar náðu 20 stiga forystu í fyrri hálfleik og héldu svo uppteknum hætti það sem eftir var leiks.

Juan Carlos Navarro og Jorge Garbajosa voru stigahæstir Spánverja með 20 stig hvor. Tölfræði leiksins má finna hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið