S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
26.8.2006 | 15:49 | oddur | FIBA
Fjórum leikjum lokið í 16 liða úrslitum HM
16 liða úrslitum lýkur á morgun
Argentínumenn áttu ekki í miklum vandræðum með að sigra gegn Nýsjálendingum. Leikurinn endaði 79-62 fyrir Argentínu og skoraði Manu Ginobili 28 stig í leiknum. Spánn byrjaði vel gegn Serbíu/Svartfjallalandi og náðu þeir að halda forystunni allan leikinn. Pau Gasol var með 19 stig og 16 fráköst fyrir Spánverja. Tyrkir sigruðu Slóvena í hörkuleik þar sem að Erkan Serdokan skoraði 15 af 24 stigum sínum í fjórða leikhluta. Litháen bar sigurorð af Ítalíu 71-68. Ítalirnir klikkuðu á 5 vítum á lokasekúndunum og misstu þar með af sæti í átta liða úrslitunum. Í næstu umferð mæta Argentínumenn Tyrkjum og Spánverjar leika gegn Litháum. Á morgun lýkur 16 liða úrslitunum. Hægt verður að fylgjast með gangi mála á heimasíðu mótsins. |