S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
22.8.2006 | 15:00 | oddur
Spánn og Angóla komin áfram úr B-riðli
Angóla eru komnir í 16 liða úrslit
Spánverjar sigruðu Þjóðverja 92-71 í leik þar sem að bakverðir Spánverja léku mjög vel. Afríkumeistarar Angóla hafa leikið mjög vel á mótinu og í gær sigruðu þeir Nýja Sjáland 95-73. Eduardo Mingas lék mjög vel fyrir Angóla, skoraði 27 stig og tók 12 fráköst. Argentínumenn eru einnig ósigraðir eftir að hafa unnið Venezuela 96-54. Þetta er annar leikurinn í röð þar sem að Argentínumenn hafa farið létt með. Varamenn Argentínu léku mjög vel í þessum leik og fylgdu vel eftir góðri byrjun liðsins. Serbía/Svartfjallaland og Japan unnu sína fyrstu leiki á mótinu í gær og Frakkar sigruðu Nígeríu í hörkuleik. Úrslit, tölfræði og umsagnir um leikina má finna hérna. |