© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.8.2006 | 9:32 | BL
Götuboltamót á Miklatúni
Frá nýja götuboltavellinum á Miklatúni.
Götuboltamótið 305 verður haldið næstu helgi á Miklatúni. Götubolti er bein þýðing á "Streetball" sem að sjálfsögðu er körfubolti ef einhverjir eru í vafa. Búið er að standsetja völlinn þannig að aðstæður eru eins og best verður á kosið og allar körfur í hæðinni 305. Keppt er á 4 körfur samtímis, þannig að 8 lið geta keppt á sama tíma.

Mótið hefst kl. 10:00 og stendur fram eftir degi laugardaginn 26. águst og höfum við sunnudaginn uppá að hlaupa til vonar og vara ef fárviðri geisar á laugardeginum eða að dagurinn dugi ekki til að klára mótið.

Hvert liði á að skipa 3-4 leikmönnum en keppt er í 3 á 3, með einn varamann sem má skipta inná hvenær sem er. Skráningargjald er 500 kr. á hvern leikmann og er greitt á staðnum.

Flokkur 1kk: 15-17 ára, flokkur 2kk: 18 og +, fokkur 1kvk: 15-17 ára, flokkur 2kvk: 18 og +.

Skráning fer þannig fram:
1. Sendið okkur nöfn allra leikmanna og kennitölu á netfangið sverrisson@hive.is
2. Nafn liðsins.
3. Númer flokks, 1 eða 2.
4. Staðfesting verður send til ykkar um skráningu og skal hún
prentuð út og tekin með á völlin og sýnd þegar greitt er.

Leikreglur:
1. Keppt er á eina körfu, 3 á 3.
2. Sóknin dæmir.
3. "Make it take it" og spila út fyrir línu eftir "turnover".
4. 2 stig fyrir utan línu.
5. Engin tími en keppt uppí 11. Vinna verður með 2 stigum.
Úrslitaleikirnir eru uppí 15 og vinna verður með 2 stigum.
6. Annars gilda almennar reglur FIBA um skref, dripl og villur.
7. Umsjónarmaður fylgist með skori á hverjum velli og sker úr um vafaatriði.

Verðlaun eru í boði Nike og eru körfuboltaskór í verðlaun fyrir eldri flokkana og bolir, boltar og tölvuleikir í verðlaun fyrir yngri flokkana.

Umsjónarmenn mótsins eru Ívar Örn Sverrisson og Sverrir Bergmann.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erla Reynisdóttir fyrirliði Keflavíkur lyftir Íslandsbikarnum vorið 1998 en það tímabil varð Keflavík einnig bikarmeistari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið