© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.8.2006 | 22:26 | SÖA | Dómaramál
Sigmundur dæmir í undanúrslitum
Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari dæmir á morgun leik Spánverja og Króata í undanúrslitum A-deildar U16ka, en þetta er annað árið í röð þar sem Sigmundur dæmir leik í undanúrslitum A-deildar U16ka.

Sigmundur hefur staðið sig mjög vel á Spáni, en eins og sagt var frá á kki.is fyrir nokkru, þá dæmdi hann opnunarleik mótsins í beinni útsendingu í spænska ríkissjónvarpinu. Eftir riðlakeppnina hefur hann að mestu dæmt leiki í efri hluta keppninnar og hefur greinilega staðið fyrir sínu. Meðdómarar Sigmundar á morgun eru Kestuis Pilipauskas frá Litháen og David Chambon frá Frakklandi.

Að sögn Sigmundar hefur verið troðið út úr dyrum á öllum leikjum spænska liðsins, og má búast við að svo verði á morgun.

Alls eru 24 FIBA dómarar staddir á mótinu og er það því mikill heiður fyrir Sigmund að fá úthlutað leik í undanúrslitum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björn M. Björgvinsson, Guðrún Ólafdóttir og Guðmundur Þorsteinsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið