© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.8.2006 | 20:04 | fararstjori | Dómaramál, Yngri landslið
38 stiga tap fyrir Lettum
Örn var stigahæstur en á mikið inni líkt og aðrir lykilmenn
Íslensku strákarnir áttu sinn slakasta leik í dag gegn Lettum þar sem staðan í hálfleik var 54-32
og lokatölur 94-56. Stigahæstur í liði Íslendinga var Örn Sigurðarson með 14 stig og 7 fráköst.

Alltof mikið af hraðupphlaupum og auðveldum körfum gerðu útslagið þar sem að sterkt lið Letta sigruðu
auðveldlega hálfslappa Íslendinga.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 33-33 og náðu Lettar að taka oft á tíðum tvö sóknarfráköst til að
skora í hálfleik 54-32. Örn Sigurðarson var með 12 stig í fyrri hálfleik og var að hitta ágætlega.
Í síðari hálfleik bættu Lettar við forystuna og sigruðu þeir að lokum með 38 stigum. Leikur strákanna
var ekki uppá marga fiska og áttu þeir sinn lélegasta leik á mótinu. Allir leikmenn fengu góð tækifæri
í leiknum sem endaði 94-56.

Tölfræði leiksins

Á morgun eiga strákarnir leik gegn Slóvenum sem töpuðu í dag gegn Grikkjum 61-79, Ingi Þór og Halldór
fylgdust með leik Grikkja og Slóvena og voru þar á ferðinni tvö góð lið, verkefni strákanna er því
strembið, en þeir eru staðráðnir í að standa sig betur.

Sigmundur Már Herbertsson dæmdi leik Rússa og Króatíu, en Rússar sigruðu leikinn 82-66. Sigmundur Már
hefur fengið mjög góða dóma hérna sem sést best í því hvaða leiki honum hefur verið úthlutað.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þórir Magnússon leikmaður KFR var mikil langskytta. Hér er hann um það bil að hleypa af og Kolbeinn Pálsson leikmaður KR er aðeins of seinn til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið