
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 12.8.2006 | 14:56 | OOJ Stelpurnar enda í 17. sæti eftir tap gegn Portúgal í dag   Hafrún skoraði 12 þrista á mótinu, fjóra þeirra í dag. Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn af miklum krafti, voru 11-5 yfir eftir rúmar þrjár mínútur, 19-8 yfir, eftir 5 mínútur og hafði 9 stiga forskot, 28-19, eftir fyrsta leikhlutann. Portúgalir náðu að snúa leiknum í öðrum leikhluta sem var slakasti leikhluti íslenska liðsins í leiknum. Íslensku stelpurnar náðu þá aðeins að skora 4 stig gegn 21 og gekk þá illa að leysa pressu portúgalska liðsins sem skoraði 10 af stigum sínum í leikhlutanum úr hraðaupphlaupum. Íslenska liðið var því komið 8 stigum undir í hálfleik, 32-40. Sá munur hélst í seinni hálfleiknum en sjö stigum munaði eftir þriðja leikhlutann, 50-57. Íslensku stelpurnar náðu muninum niður í fimm stig, 56-61, þegar fjórar mínútur voru eftir en nær komust þær ekki og Portúgal vann átta stiga sigur og spilar til úrslita um 15. sætið við Austurríki á morgun. Hafrún Hálfdánardóttir hefur verið sjóðheit fyrir utan þriggja stiga línuna í mótinu og skoraði 12 af 20 stigum í dag fyrir utan. Hafrún nýtti 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum og er þar með 40% skotnýtingu (12 af 30) fyrir utan þriggja stiga línuna í mótinu. Ragna Margrét Brynjarsdóttir tók 15 fráköst í leiknum auk 10 stig og stigahæsti leikmaður íslenska liðsins í evrópumótinu í Jyvaskyla, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, var með 11 stig og 7 fráköst. Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu gegn Portúgal í dag: Hafrún Hálfdánardóttir 20 stig (5 fráköst, 3 varin, hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum) Lilja Ósk Sigmarsdóttir 11 stig (7 fráköst, 3 stolnir) Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10 stig (15 fráköst) Ingibjörg Jakobsdóttir 5 stig Klara Guðmundsdóttir 5 stig (4 fráköst) Guðbjörg Sverrisdóttir 4 stig (4 fráköst, 3 stoðsendingar) Gunnhildur Gunnarsdóttir 3 stig Kristín Fjóla Reynisdóttir, Salbjörg Sævarsdóttir, Helena Hólm og Lóa Dís Másdóttir skoruðu allar en náðu ekki að skora. |