S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.8.2006 | 10:22 | BL
Dregið í riðla í Evrópukeppni félagsliða
UMFN og Keflavík taka þátt í áskorendabikarkeppninni, EuroCup Challange, en alls taka 16 lið þátt í þeirri keppni. UMFN lenti í C-riðli og mætir þar Cherkasy frá Úkraínu, Samara frá Rússlandi og Tartu Rock frá Eistlandi. Keflavík dróst í D-riðil ásamt Dnipro frá Úkraínu, Mlekarna Kunin frá Tékklandi og Norrköping frá Svíðþjóð. Suðurnesjaliðin leika fyrst á útivelli 8. og 9. nóvember, en fyrstu heimaleikir liðanna verða 16. og 17. nóvember. Haukarstelpurnar, sem taka þátt í Evrópukeppni í annað sinn, lentu aftur á móti félögum frá Frakklandi, Spáni og Ítalíu eins og í fyrra. Mótherjar þeirra í F-riðli Evrópubikarkeppni kvenna, EuroCup Women, verða Montpellier frá Frakklandi, Gran Canaria frá Spáni og Lavezzini Parma frá Ítalíu. Haukar hefja leik á heimavelli 9. nóvember. Nánar um Evrópukeppnir félagsliða á vef FIBA Europe og á vefjum félaganna. |