© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.7.2006 | 16:05 | OOJ
Stelpurnar byrja vel i milliriðlinum - 17 stiga sigur á Englandi
Maria Ben var atkvaedamikil gegn Englandi.
Stelpurnar í 18 ára landsliðinu byrjuðu milliriðilinn vel þegar þær unnu 17 stiga sigur, 96-79, á Englandi í dag en sex lið eru í riðlinum og þau keppa um 9. til 14. sæti á Evrópumótinu í Chieti à Ítaliu. Íslenska liðið byrjaði leikinn frabærlega og komst meðal annars í 29-7 og sigurinn var aldrei í hættu þótt að enska liðið hafði komið muninum niður í fjögur stig í þriðja leikhluta. María Ben Erlingsdóttir og Helena Sverrisdóttir voru atkvæðamestar, Maria Ben með 20 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar en Helena með 20 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar.

Stelpurnar settu á svið skotsýningu fyrstu sex minutur leiksins og komust í 29-7 en staðan eftir fyrsta leikhlutann var 34-21, Íslandi í vil. Enska liðið minnkaði muninn í sex stig, 39-33, um miðjan annan leikhluta en íslensku stelpurnar skoruðu sex síðustu stig halfleiksins og leiddu, 45-33, í halfleik. England byrjaði seinni hálfleikinn af krafti, skoraði átta fyrstu stigin og komu muninum niður í fjögur stig, 45-41. Þá tók Unndór Sigurðsson þjálfari leikhlé og í framhaldinu tók íslenska liðið öll völd á nýjan leik. Ísland var 67-52 yfir fyrir lokaleikhlutann og vann á endanum með 17 stigum, 96-79.

Berglind Anna Magnúsdóttir skoraði síðustu stig leiksins um leið og leiktiminn rann út og þar með náðu allir tíu leikmenn Íslands að skora í leiknum. Hrönn Þorgrímsdóttir hafði skömmu áður sett niður þrist og um leið skorað sín fyrstu stig á mótinu. Íslenska liðið skoraði alls 12 3ja stiga körfur þar af 5 úr aðeins 6 skotum í fyrsta leikhluta.

Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu gegn Englandi:
Helena Sverrisdóttir 20 stig (13 fráköst, 8 stoðsendingar)
Maria Ben Erlingsdóttir 20 stig (7 fráköst, 7 stoðsendingar)
Bryndís Guðmundsdóttir 17 stig (15 stig í seinni, 10 fráköst, 4 stoðsendingar)
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 12 stig (hitti ur 4 af 5 3ja stiga skotum, 5 fráköst, 6 stoðsendingar)
Margrét Kara Sturludóttir 11 stig (6 stolnir)
Bara Bragadóttir 7 stig
Sigrún Ámundadóttir 3 stig (3 stoðsendingar)
Hrönn Þorgrímsdóttir 3 stig
Unnur Tara Jónsdóttir 3 stig
Berglind Anna Magnúsdóttir 2 stig

Íslenska liðið mætir Portugal klukkan 15.15 á morgun að íslenskum tima og hefur harma að þvi Portugal vann báða leik liðanna í evrópukeppni 18 ara liða í Bosníu í fyrra með samtals fjögurra stiga mun þar af þann seinni eftir tvíframlengdan leik er liðin spiluðu um sjöunda sætið.



Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir skoraði þrjá þrista í fyrsta leikhluta, var með 12 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst í leiknum og er greinilega búin að ná sér af meiðslunum sem hrjáðu hana í fyrstu leikjunum. Kolbrún Vala sjúkraþjálfari á þar miklar þakkir fyrir góða meðhöndlun.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið