S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
18.7.2006 | 6:16 | fararstjori
Frá Grikklandsförum
Í dag hefst Evrópukeppni U-18 í Grikklandi. En eins og kunnugt er leikur Ísland í A-deild og er í riðli med Spánverjum, Króötum og Frökkum. Leikurinn í dag gegn Spánverjum hefst kl. 19:00 eða kl. 16:00 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni uppfærslu á FIBAEurope.com.
Ferðalagið á leikstað var strembið. Eftir sólarhringsdvöl í London hélt hópurinn með flugi til Aþenu og loks med rútu til Olimpiu en sú ferð tók 5 klst. Sólin var komin upp er leikmenn gengu til náða. Aðbúnaður er mjög góður, gisting og fæði til fyrirmyndar. Hótelið er í talsverðri fjarlægð frá skarkala heimsins. |