© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.7.2006 | 19:49 | bjarnig | Yngri landslið
Sárt tap fyrir Georgíu
Steingrímur Gauti spilar fantavörn
Ísland tapaði fyrir Georgíu í dag 89-80 eftir að hafa verið tveimur stigum yfir eftir 3 leikhluta. Íslenska liðið lenti mest 14 stigum undir í öðrum leikhluta 40-26 þegar um 6 mín voru eftir af öðrum. Eftir hetjulega barráttu í seinni hluta annars og allan þriðja leikhluta dró úr íslenska liðinu og tapaðist fjórði leikhlutinn 29-18. Einhvern vegin æxlaðist það í öllum fjórum leikhlutunum að Georgíu skoraði flautukörfur, 3ja stiga flautukörfur í fyrstu þemur leikhlutunum og eina tveggja stiga í lok fjórða. Þessar körfur geta verið dýrkeyptar þegar upp er staðið því nú þarf íslenska landslið að vinna Finna með 13 stigum til að komast í efri hluta mótsins.

Bestir í íslenska liðnu í dag voru Pavel og Jóhann. Pvael var með 23 stig, 15 fráköst og 7 stoðsendingar. Jóhann var með 27 stig og 8 fráköst. Aðrir leikmenn sem komu við sögu leiknum stóðu sig vel og má þar nefna Steina í Val, Alla Dungal í FSU, Darri stóð fyrir sínu þó hann væri slæmur í baki en lét það ekki á sig fá þegar þjálfarinn setti hann inn á, Kristján var í ósanngjörnum villuvandræðum og náði sér aldrei í takt við leikinn.

Næsti leikur íslenska liðsins er á móti Finnum og jafnframt sá seinasti í riðlinum. Leikurinn verður sunnudaginn 16. júlí kl. 20:15
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá stofnfundi Körfuboltaútgáfunnar ehf. sem gaf út tímaritið “Karfan” árið 1993.  Ólafur Johnson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Bollason, Ólafur Rafnsson, Hannes Ágúst Guðmundsson, Haukur Hauksson, Sverrir Sverrisson og Björn Leósson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið