S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
14.7.2006 | 13:37 | OOJ | Yngri landslið
Brynjar búinn að skora hundrað þrista með yngri landsliðunum
Brynjar í leik gegn Dönum þar sem að hann skoraði 100. þristinn
Brynjar Þór skoraði hundruðustu þriggja stiga körfu sína í eins stigs sigri á Dönum, 95-95, 26. maí en hann skoraði alls fjóra þrista í þessum leik sem tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum á mótinu. Brynjar og félagar unnu síðan heimamenn í Svíþjóð í úrslitaleiknum og tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í annað sinn á tveimur árum. Brynjar er eini fyrirliðinn sem hefur tekið við tveimur Norðurlandameistarabikurum fyrir Íslands hönd en hann var fyrirliði 1988-liðsins í bæði skiptin. Brynjar Þór og félagar eru á leiðinni til Grikklands á morgun, laugardag, þar sem að þeir eru að fara spila í A-deild Evrópukeppni 18 ára liða. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Spánverjum 18. júlí en í riðli Íslands eru einnig Króatar og Frakkar þannig að það bíður íslensku strákanna verðugt verkefni. Brynjar er þarna á leiðinni í sína fimmtu Evrópukeppni og hefur alls leikið 26 landsleiki í Evrópukeppni. Brynjar hefur tekið þátt í að koma íslenska liðinu upp í A-deild tvö sumur í röð, fyrst 16 ára liðinu 2004 og svo 18 ára liðinu í fyrra. Nú spilar Brynjar í fyrsta sinn meðal þeirra bestu í sínum árgangi og það verður gaman að sjá hvernig honum og félögum hans gengur í Grikklandi. Stig og þristar Brynjars fyrir yngri landslið Íslands: 16 ára lið karla Samtals: 21 leikur, 347 stig, 45 þristar (16,5 stig/2,1 þristar í leik) Á Norðurlandamóti: 5 leikir/90 stig/10 þristar (18,0/2,0) Í Evrópukeppni: 13 leikir/241 stig/31 þristur (18,5/2,4) Í æfingalandsleikjum: 3 leikir/16 stig/4 þristar (5,3/1,3) 18 ára lið karla Samtals: 23 leikir, 342 stig, 60 þristar (14,9/2,6) Á Norðurlandamóti: 10 leikir/204 stig/35 þristar (20,4/3,5) Í Evrópukeppni: 13 leikir/138 stig/25 þristar (10,6/1,9) Yngri landslið karla Samtals: 44 leikir, 689 stig, 105 þristar (15,7/2,4) Á Norðurlandamóti: 15 leikir/294 stig/45 þristar (19,6/2,0) Í Evrópukeppni: 26 leikir/379 stig/56 þristar (14,6/2,2) Í æfingalandsleikjum: 3 leikir/16 stig/4 þristar (5,3/1,3) Myndina tók Snorri Örn |