© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.7.2006 | 11:47 | OOJ | Yngri landslið
Ágóðaleikur fyrir íslensku stelpurnar
Klara Guðmundsdóttir er ein af stelpunum 22 sem treysta á góða mætingu.
Stelpurnar í 16 ára og 18 ára liðunum eru á leiðinni í Evrópukeppni á næstu vikum og stelpurnar borga sjálfar hluta af ferðakostnaðinum. Stelpurnar hafa gengið á milli einstaklinga og fyrirtækja til þess að safna sér fyrir ferðinni en nú er komin upp sú skemmtilega hugmynd að liðin liðin mætist í sérstökum ágóðaleik á Ásvöllum í næstu viku.

Leikurinn fer fram á þriðjudaginn kemur, hefst klukkan 18.00 og mun allur ágóði af honum renna í ferðasjóð efnilegustu körfuboltakvenna landsins. Þetta er aðeins í í fjórða og fimmta sinn sem Ísland sendir yngri landslið kvenna í Evrópukeppni og hafa íslensku kvennalandsliðin verið að taka stór framfaraskref á undanförnum árum.

Það er ekki nóg með að stelpurnar fórni sumrinu í stífar og strangar æfingar þær þurfa líka að borga hluta af ferðakostnaðinum sjálfar. Það kæmi sér því afar vel að fá góðan stuðning og vonast stelpurnar því eftir góðri mætingu á leikinn. 18 ára liðið er á leiðinni til Ítalíu í seinni hluta þessa mánaðar og 16 ára liðið spilar sína leiki í Finnlandi í fyrri hluta ágústmánuðar. Alls eru 22 stelpur í landsliðunum tveimur og allar treysta þær á að þessum ágóðaleik verði vel tekið hjá körfuknattleiksáhugafólki.

Þessar stelpur treysta á góðan stuðning á þriðjudaginn:

- 18 ára liðið -
Bára Bragadóttir, Keflavík
Berglind Anna Magnúsdóttir, Grindavík
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Helena Sverrisdóttir, Haukum
Hrönn Þorgrímsdóttir, Keflavík
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Keflavík
Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Haukum
Unnur Tara Jónsdóttir, Haukum

- 16 ára liðið -
Alma Rut Garðarsdóttir, Grindavík
Guðbjörg Sverrisdóttir, Haukum
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfelli
Hafrún Hálfdánardóttir, Hamar
Helena Brynja Hólm, Haukum
Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík
Klara Guðmundsdóttir, Haukum
Kristín Fjóla Reynisdóttir, Haukum
Lilja Ósk Sigmarsdóttir, Grindavík
Lóa Dís Másdóttir, Kormáki
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukum
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Kormáki

Unndór Sigurðsson þjálfar 18 ára liðið en Yngvi Gunnlaugsson er þjálfari 16 ára liðsins.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Strákarnir í U-16 náðu þriðja sætinu á Norðurlandamótinu í Solna í maí 2009. Þeir lögðu Finna að velli 58-64 í leiknum um þriðja sætið. Strákarnir stilltu sér upp fyrir hópmynd strax að loknum sigrinum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið