S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
16.6.2006 | 10:01 | BL | Yngri landslið
Fjölmenni í Elítubúðum um síðustu helgi
Feta þeir í fótspor feðranna og leika með landsliði Íslands?
Strákarnir á myndinni hér til hliðar voru í Elítubúðunum um síðustu helgi, en þeir eru allir synir fyrrum landsliðsmanna. Frá vinstri:Valur Orri Valsson Ingimundarsonar, Elvar Már Friðriksson Ragnarssonar, Martin Hermannsson Haukssonar, Aron Ingi Albertsson Óskarssonar, Dagur Kár Jónsson Kr. Gíslasonar. Fjölmargar stelpur, eða um 60 talsins, mættu í búðirnar og voru sér æfingar fyrir þær. Búðirnar eru hugsaðar sem undanfari yngri landsliða Íslands, en síðustu ár hefur KKÍ staðið fyrir öflugu og markvissu starfi hjá yngri kvennalandsliðum. Stelpur frá Keflavík, Njarðvík og Haukum fjölmenntu í búðirnar. Einnig var góð mæting frá Snæfelli, Fjölni, UMFS og KR. Auk þess mættu stúlkur frá nokkrum öðrum félögum. Við fyrstu sýn þá virðast þessir þrír árgangar lofa góðu og með mikilli vinnu stúlknanna, félaga þeirra og KKÍ, þá ætti að vera hægt að viðhalda þeim styrkleika sem yngri kvennalandsliðin hafa náð síðustu ár. Myndir af stelpunum við æfingar í búðunum er að finna á karfan.is. |