© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.5.2006 | 15:27 | OOJ
Strákarnir Norðurlandameistarar í annað sinn
Hörður A. Vilhjálmsson lék frábærlega á NM og var valinn MVP mótsins
18 ára strákarnir urðu Norðurlandameistarar eftir glæsilegan 13 stiga sigur á Svíum, 82-69, í úrslitaleiknum í Solna í dag. Íslensku strákarnir heilluðu alla í höllinni með leikgleði sinni, baráttu og frábærri liðssamvinnu sem sá til þess að Svíar voru í farþegasætinu allan leikinn. Þetta er annar Norðurlandameistaratitill 1988-árgangsins í röð en þeir unnu einnig fyrir tveimur árum þegar þeir spiluðu sem 16 ára landslið. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 22 stig í úrslitaleiknum og var valinn maður mótsins en ásamt honum var Sigurður Gunnar Þorsteinsson í úrvalsliðinu en Sigurður tók meðal annars 22 fráköst, varði 6 skot og skoraði 13 stig í úrslitaleiknum.

Strákarnir byrjuðu leikinn ágætlega og komust í 6-2 en Svíar náðu að jafna í 10-10. Frábær kafli í lok fyrsta leikhluta kom íslenska liðinu í 15-10 og eftir fyrsta leikhlutann var staðan 18-12 fyrir Ísland. íslenska liðið hélt frumkvæðinu allan 2. leikhluta og hleypti sænska liðinu aldrei of nálægt sér. Staðan í hálfleik var 36-28 fyrir Ísland.

Svíar hófu seinni hálfleik af krafti og munurinn var kominn niður í 4 stig eftir 4 minútur en líkt og átti eftir að gerast svo oft í leiknum þá tóku íslensku strákarnir alltaf góðan sprett þegar Svíarnir nálguðust of mikið. Ísland var yfir, 52-49, eftir 3. leikhluta eftir að Svíar höfðu unnið síðustu 1 mínútuna og 15 sekúndurnar 9-2. Tvær góðar körfur frá Sigurði Þorsteinsson í upphafi fjórða leikhlutans komu íslensku liðinu aftur í gang og í lokin munaði 13 stigum á liðinu.

Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 22 stig og tók 7 fráköst en hann lék allan seinni hálfleik sárþjáður eftir að hafa meitt sig á ökkla í fyrri hálfleiknum. Fyrirliðinn Brynjar Þór Björnsson fór fyrir sínum mönnum og var með 19 stig og 5 stoðsendingar og þá má ekki gleyma framlagi miðherjans Sigurðar Þorsteinssonar sem endaði leikinn með 13 stig, 22 fráköst og 6 varin skot.

Hörður og Sigurður voru báðir valdir í úrvalsliðið og Hörður var valinn besti maður mótsins. Þröstur Jóhannsson og Hörður Helgi Hreiðarsson skoruðu gríðarlega stórar og mikilvægar körfur í fjórða leikhlutanum og smituðu út frá sér með svakalegri baráttu enda báðir mikilir stemmningsmenn. Ásamt Herði og Sigurði í úrvalsliðinu voru norskur, finnskur og sænskur strákur.

Benedikt Guðmundsson er þar með búinn að gera tvö íslensk landslið að Norðurlandameisturum á tveimur árum en 1988-strákarnir unnu einnig undir hans stjórn árið 2004. Líkt og þá setti Benedikt úrslitaleikinn ofar en lokaleikinn í riðlinum sem báðir máttu tapast. Þetta eru einu tapleikir 1988-árgangsins í þessum tveimur keppnum en fyrir vikið hefur íslenska liðið mætt gríðarlega sterkt í báða úrslitaleikina og unnið þá með samtals 44 stigum.

18 ára karlar, úrslitaleikur
Ísland-Svíþjóð 82-69 (18-12, 36-28, 52-49)
Stig Íslands:
Hörður Axel Vilhjálmsson 22 (7 fráköst, 3 stoðsendingar), Brynjar Þór Björnsson 19 (5 stoðsendingar), Sigurður Gunnar Þorsteinsson 13 (22 fráköst, 6 varin skot), Þröstur Jóhannsson 12 (5 fráköst, 20 mínútur), Hörður Helgi Hreiðarsson 7 (8 fráköst, 4 stoðsendingar), Hjörtur Hrafn Einarsson 6 (4 stoðsendingar), Rúnar Ingi Erlingsson 3.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1995.  Aftari röð frá vinstri: Sigurður Hjörleifsson þjálfari, Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Hrefna Hugósdóttir, Elísa Vilbergsdóttir, Unnur Henrysdóttir, Svana Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Hannes S. Jónsson varaformaður, Sævar Guðbergsson stjórnarmaður og Jóhann Árnason formaður.  Fremri röð frá vinstri: Hildur Ólafsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Penny Peppas, Olga Færseth og Sólveig Kjartansdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið