S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
24.5.2006 | 16:00 | OOJ
16 ára lið karla spilar tvo leiki á fimmtudaginn
![]() Snorri Páll Sigurðsson fyrirliði U-16 liðsins
16 ára landsliðið hefur unnið til verðlaun tvö síðustu ár, varð Norðurlandameistari 2004 og endaði í 2. sæti í fyrra eftir hörku úrslitaleik gegn Svíum. Íslenska liðið hafði þá unnið leik liðanna í riðlakeppninni en tapaði úrslitaleiknum með fjórum stigum. Þrír leikmenn liðsins hafa reynslu af landsliðinu því þeir Örn Sigurðarson, Hjörtur Halldórsson og Snorri Páll Sigurðsson voru einnig með 16 ára liðinu í fyrra. Örn spilaði bara með á Norðurlandamótinu og Snorri Páll var bara með í Evrópukeppninni en Hjörtur var með á báðum mótum og er því leikreyndasti leikmaður liðsins. Flestir leikmenn liðsins koma frá Íslands- og bikarmeistaraliði KR eða fimmm en Blikar eiga næstflesta leikmenn í liðinu eða alls tvo menn. Alls eiga sex félög leikmenn í liðinu og sjöunda félagið, Grindavík, missti sinn fulltrúa í meiðsli á einni af síðustu æfingunum fyrir mótið. Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Fimmtudagur 25. maí 10:30 Ísland-Finnland Fimmtudagur 25. maí 18:30 Ísland-Svíþjóð Föstudagur 26. maí 13:00 Ísland-Danmörk Laugardagur 27. maí 15:00 Ísland-Noregur Á sunnudeginum er síðan leikið um sæti 16 ára landslið karla á Norðurlandamótinu 2006 - Bakverðir - ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() - Framherjar - ![]() ![]() ![]() - Miðherjar - ![]() ![]() ![]() 16 ára landslið karla á NM 2003 (1986) - 4. sæti 2004 (1988) - 1. sæti 2005 (1989) - 2. sæti Gengi 16 ára landsliðs karla gegn þjóðum Danmörk - (4 leikir) 3 sigrar og 1 tap, 75% Finnland - (3 leikir) 2 sigrar og 1 tap, 33% Noregur - (3 leikir) 2 sigrar og 1 tap, 33% Svíþjóð - (5 leikir) 4 sigrar og 1 tap, 80% Samtals: 15 leikir, 11 sigrar, 4 töp, 73% |