© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.4.2006 | 21:11 | BL
Skallagrímur í úrslit í fyrsta sinn
Skallagímur sló Íslandsmeistara Keflavíkur út úr úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla með 80-84 sigri í Keflavík í kvöld og leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Njarðvíkingum.

Þetta er fyrsti sigur Skallagríms á Keflavík á útivelli í sögunni og gat ekki komið á betri tíma fyrir þá Borgnesinga. Skallagrímur hefur aldrei fyrr komist í úrslitarimmuna um titilinn.

Skallagrímur náði 16 stiga forystu í upphafi leiksins og var yfir í hálfleik 28-42. Keflavíkingar jöfnuðu leikinn í þriðja fjórðungi og allan lokafjórðunginn var leikurinn í járnum. Staðan var jöfn 80-80 þegar 28 sekúndur voru eftir af leiknum. Þá var dæmd tæknivilla á Arnar Frey Jónsson leikmann Keflavíkur í kjölfar annarrar villu og Skallagrímur átti 4 vítaskot og innkast. Á þeim tíma sem eftir var skoraði þeir 4 stig og tryggðu sér sögulegan sigur.

Tölfræði leiksins.

Fyrsta úrslitaviðureign Njarðvíkur og Skallagríms verður í Njarðvík á laugardaginn kemur kl. 16:00.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson kastar boltanum til að hefja leik Hauka og Njarðvíkinga þann 26. janúar 2006.  Það eru Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, sem bítast um boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið