S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.4.2006 | 14:20 | BL
Njarðvík í úrslitarimmuna sem hefst á laugardag
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga.
Sjá má tölfræði leikjanna í gær undir mótayfirlit, velja síðan viðkomandi mót og leik. Bilun í lewikvarpinu gerir það að verkum að tölfræðin birtist ekki í úrslitaglugganum hér á forsíðunni. Fyrsti úrslitaleikurinn verður á laugardag kl. 16:00 og annar leikurinn mánudaginn 10. apríl kl. 20. Þriðji leikurinn verður síðan laugardaginn 15 apríl kl. 16:00. Komi til fjórða leiks verður hann mánudaginn 17. apríl kl. 20 og verði oddaleikur þá verður hann leikinn fimmtudaginn 20. apríl. Í kvöld fara fram tveir mikilvægir leikir í úrslitakeppnunum. Keflavík og Haukar mætast í öðrum leik úrslita kvenna og verður leikurinn í Keflavík kl. 20. Þá mætast Breiðablik og Þór Þ. öðru sinni í rimmu sinni um laust sæti í Iceland Express-deildinni að ári. Sá leikur hefst kl. 19:15. Með sigri getur Þór Þ. tryggt sér sætið eftirsótta. |