S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.8.2015 | 18:15 | Kristinn | Landslið
Ísland sigrar Líbanon í 501. landsleik karlalandsliðsins
Ísland lagði landslið Líbanon, í fyrsta landsleik þjóðanna, nú fyrr í kvöld 96:75. Íslenska liðið var sex stigum undir í hálfleik en gerði sér lítið fyrir og kom ákveðiði til leiks eftir hlé og vann næsta leikhluta 40:10 og sýndi liðið sitt rétta andlit. Eftirleikurinn var á sömu nótum og íslenskur sigur staðreynd. Martin Hermannsson skoraði 24 stig á 24 mínútum og Haukur Helgi Pálsson var með 23 stig. Jakob Sigurðarson var með 11 stig. Á morgun er lokaleikur okkar stráka á mótinu í Pólandi gegn EuroBasket liðið Belga og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma. Á mánudeginn heldur svo liðið til Berlínar þar sem lokaundirbúningurinni fyrir EM hefst, en liðið verður við æfingar í Þýskalandi fram að móti. Lifsndi tölfræði er á: http://www.pzkosz.plt/ Tölfræði leiksins: Ísland-Líbanon. |