S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.3.2006 | 11:02 | BL
NCAA - Marsfárið að skella á
Í upphafi keppnistímabilsins leika liðin við lið úr öðrum riðlum og jafnvel við lið úr neðri deildum. Í desember byrjar síðan keppni í riðlunum. Keppnin í riðlunum lýkur svo í byrjun mars. Flest þau lið sem sigra í sínum riðli vinna sér sjálfkrafa sæti í 64 liða úrslitakeppninni. Þetta gera þau annaðhvort með því að vera efst í sínum riðli, eða að vinna sérstaka úrslitakeppni. Sérstak valnefnd velur síðan um 35 lið í viðbót eftir frammistöðu sinni á keppnistímabilinu til að taka þátt í úrslitakepnninni. Hún styrkleikarraðar liðinum þannig að sterkasta liðið leikur við lið lakasta liðið og svo framvegis. Einnig er betri liðunum umbunað með því að þurfa að ferðast styttri vegalengdir á keppnistað. Í ár valdi valnefndin lið Duke, Memphis, Villanova og Connecticut í fyrsta styrkleikaflokk Íslenskir íþróttaáhugamenn geta fylgst með kepninni beint á sjónvarpsstöðinni NASN. þeir sem hafa aðgang að Breiðabandinu eða eru með ADSL-tengingu frá Símanum geta gerst áskrifendur að stöðinni hjá Símanum og kostar mánuðurinn 1.695 krónur. Nánar um Marsfárið á vef NCAA. |