S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.3.2006 | 19:47 | OOJ
KR-ingar unnu einir tvö bikartitla - sjö félög urðu bikarmeistarar um helgina
Það var sagt frá úrslitaleikjum laugardagsins á KKÍ-síðunni í gær og það má finna þá umfjöllun hér. Nú er komið að úrslitaleikjum seinni dagsins. Fyrsti úrslitaleikur sunnudagsins var æsispennandi leikur í 9. flokki kvenna þar sem Njarðvík varð bikarmeistari eftir eins stigs sigur á Haukum, 38-37. Það var maður leiksins, Dagmar Traustadóttir hjá Njarðvík sem tryggði sínu liði sigurinn á vítalínunni en Dagmar var með þrefalda tvennu í leiknum skoraði 18 stig, tók 10 fráköst og stal 10 boltum. Haukar náðu mest níu stiga forskot í fyrri hálfleik (15-6) og höfðu sex stiga forskot í hálfleik, 22-16. Heiða Björg Valdimarsdóttir tók 24 fráköst fyrir Njarðvík og varði auk þess 4 skot og þá var Hanna Birna Valdimarsdóttir með 6 stig og 8 fráköst og Erna Lind Teitsdóttir skoraði 6 stig og stal 5 boltum. Guðbjörg Sverrisdóttir var með 15 stig, 15 fráköst og 7 stolna bolta í liði Hauka, Heiðrún Jónsdóttir skoraði 9 stig og tók 11 fráköst og þá var Rannveig Ólafsdóttir með 19 fráköst auk 2 stiga. Valur vann sögulegan sigur á Njarðvík, 66-60, í úrslitaleik 11. flokks karla en 1989-árgangurinn hjá Njarðvík hafði fyrir leikinn ekki tapað leik í fjögur ár og fjóra mánuði (11.nóvember 2001). Njarðvík hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik, náði mest 15 stiga forustu (26-11) og var sjö stigum yfir í hálfleik, 30-23. Valsmenn komu grimmir inn í seinni hálfleikinn, skoruðu átta fyrstu stig hans og komust síðan 11 stigum yfir (58-47) eftir að hafa skorað 13 stig í röð. Valur vann leikinn með sex stigum, 66-60 en miklu munaði um fyrir Njarðvíkurliðið að Hjörtur Hrafn Einarsson lék aðeins í 21 mínútu vegna villuvandræða. Páll Fannar Helgason var valinn maður leiksins en hann stjórnaði leik Valsliðsins af mikill röggsemi og var með 15 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst. Haraldur Valdimarsson var með 14 stig og 14 fráköst, Hjalti Friðriksson skoraði 13 stig og tók 9 fráköst og þá var Kristján Ragnars með 13 stig og 8 fráköst.Rúnar Ingi Erlingsson var atkvæðamestur hjá Njarðvík með 23 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta en Hjörtur skoraði 19 stig á þeirri 21 mínútu sem hann spilaði. Haukar unnu sannfærandi 43 stiga sigur á Grindavík, 106-63, í Unglingaflokki kvenna þar sem bæði Helena Sverrisdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir áttu frábæran leik. Saman skoruðu þær meðan annars 28 af 29 stigum Hauka í 1. leikhluta (Helena 16, Pálína 12) þar sem þær nýttu öll sjö skotin sín (Helena 7/7, Pálína 6/6). Haukar leiddu með 12 stigum eftir fyrsta leikhlutann, 29-17, höfðu 20 stiga forskot í hálfleik, 53-33 og voru síðan með 38 stiga forustu, 88-50, fyrir lokaleikhlutann. Helena endaði leikinn með 37 stig, 9 fráköst, 8 stoðsendingar og 5 stolna bolta en Pálína var með 30 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Þetta er þriðja árið í röð sem þær Helena og Pálína verða bikarmeistarar í þessum flokki og jafnframt þriðja árið í röð sem Helena er maður leiksins. Alma Rut Garðarsdóttir var atkvæðamest hjá Grindavík með 18 stig. KR endaði vel heppnaða helgi á sigurnótunum með því að hefna úrslitanna í úrslitaleik Unglingaflokks karla. KR vann 13 stiga sigur á FSu, 73-60, í úrslitaleik drengjaflokks. KR-liðið hafði frumkvæðið allan tímann, var fimm stigum yfir eftir 1. leikhluta, 19-14, leiddi með 3 stigum í hálfleik, 40-37, og hafði 9 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 57-48. Þetta var þriðja árið í röð sem KR vinnur bikarinn í drengjaflokki og annað árið í röð sem Brynjar Þór Björnsson er valinn maður leiksins en hann á enn eitt ár eftir í flokknum. Brynjar Þór var með 26 stig, 11 fráköst, 6 stolna bolta og 14 villur voru dæmdar á leikmenn FSu þegar þeir voru að reyna að halda aftur af honum. Fyrirliði KR-liðsins, Darri Hilmarsson, var einnig mjög góður með 18 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar og þá skoraði Ellert Arnarson 17 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Árni Ragnarsson var atkvæðamestur hjá FSu með 17 stig, Hörður K Nikulásson var með 12 stig og 6 fráköst og Vésteinn Sveinsson skoraði 10 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Það má finna yfirlit yfir bikarúrslitaleiki yngri flokkanna í nútíð og fortíð undir greinum hér á KKÍ-síðunni eða með því að ýta hér. |