S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.3.2006 | 21:47 | OOJ
KR, Grindavík, Fjölnir og FSU eignuðust bikarmeistara
Gestgjafar KR eignuðust fyrstu bikarmeistarana þegar 10. flokkur karla hjá félaginu vann Breiðablik, 47-37, í fyrsta úrslitaleik dagsins. Blikar stóðu vel í KR-liðinu framan af leik en góður sprettur KR-inga í lok fyrri hálfleiks breytti stöðunni úr 15-17 fyrir Blika í 30-19 fyrir KR sem var staðan í hálfleik. Í seinni hálfleik náðu KR-ingar mest 17 stiga forskoti en Blikar löguðu stöðuna í lokin. Snorri Páll Sigurðsson hjá KR var valinn maður leiksins en hann var með 12 stig, 13 fráköst og 9 stolna bolta. Davíð Birgisson var með 14 stig og 5 stoðsendingar hjá KR og Baldur Þór Ragnarsson skoraði 11 stig og stal 5 boltum. Hjá Blikum átti Hjörtur Halldórsson mjög góðan leik en hann var með 16 stig, 13 fráköst og 11 fiskaðar villur. 10. flokkur kvenna hjá Grindavík vann bikarmeistaratitilinn í sínum flokki eftir 53 stiga sigur á Hrunamönnum, 82-29. Grindavík hafði 31 stigs forskot í hálfleik, 48-19, og höfðu mikla yfirburði í þessum leik. Alma Rut Garðarsdóttir hjá Grindavík var valin maður leiksins en hún setti á svið skotsýningu í leiknum, skoraði 37 stig á 27 mínútum og hitti úr 15 af 20 skotum sínum (75%) þar 4 af 6 þriggja stiga skotum. Lija Ósk Sigmarsdóttir var einnig mjög traust með 19 stig, 11 fráköst, 8 stolna bolta og 5 stoðsendingar og Ingibjörg Jakobsdóttir skoraði 16 stig, gaf 6 stoðsendingar og stal 5 boltum. Hjá Hrunamönnum var Dóra Þrándardóttir atkvæðamest með 12 stig og 6 fráköst. Fjölnir vann einnig öruggan sigur í 9. flokki karla en þeir unnu Snæfelli með 28 stigum, 72-44. Snæfell skoraði 5 fyrstu stigin í leiknum en Fjölnir svaraði með 25-6 spretti og var með 14 stiga forskot í hálfleik, 39-25. Fjölnir skoraði síðan fyrstu 8 stig seinni hálfleiks og eftir það var aldrei spurning um hvernig leikurinn færi. Haukur Pálsson sem er enn í 8. flokki var maður leiksins en hann kom inn af bekknum með 25 stig, 7 fráköst, 6 stolna bolta og 3 varin skot á aðeins 18 mínútum. Haukur nýtti 11 af 16 skotum sínum og Fjölnir vann leikinn, 48-17, meðan hann var inná. Arnþór Guðmundsson var með 15 stig fyrir Fjölni og þá var Ægir Þór Steinarsson með 10 stoðsendingar auk 6 stiga og 6 stolna bolta. Hjá Snæfelli skoraði Kristján Andrésson 19 stig og Egill Egilsson var með 8 stig, 19 fráköst, 8 stoðsendingar og 4 varin skot. FSu vann sinn fyrsta titil þegar Unglingaflokkur karla hjá félaginu vann sjö stiga sigur á heimamönnum í KR, 83-90, í hörkuleik. KR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með 9 stigum í hálfleik, 47-38. KR-liðið hafði síðan frumvæðið allt þar til að Ragnar Gylfason tók sig til og setti niður þrjá þrista í röð og breytti stöðunni úr 68-66 fyrir KR í 68-75 fyrir FSu og lagði með því grunninn að sigrinum. Ragnar var valinn maður leiksins en hann skoraði 19 af 22 stigum sínum í seinni hálfleik þar sem að hann hitti úr 7 af 11 skotum sínum þar af 5 af 8 skota sinna fyrir utan þriggja stiga línuna. Alexander Dungal átti einnig mjög góðan leik fyrir FSU og var með 21 stig, 14 fráköst og 5 stoðsendingar og þá var Vésteinn Sveinsson með 16 stig og 8 stoðsendingar, Hörður Hreiðarsson gerði 10 stig og náði 6 boltum og þá var Árni Ragnarsson með 6 varin skot auk 9 stiga. Hjá KR Brynjar Þór Björnsson langatkvæðamestur með 41 stig, 10 fiskaðar villur, 9 fráköst og 4 stoðsendingar. Það má finna yfirlit yfir bikarúrslitaleiki yngri flokkanna í nútíð og fortíð undir greinum hér á KKÍ-síðunni eða með því að ýta hér. |