© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.2.2006 | 13:38 | BL
Ólafur Rafnsson í framboð til forseta ÍSÍ
Ólafur Rafnsson formaður KKÍ.
Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á íþróttaþingi sem fram fer eftir nokkrar vikur. Hann er annar frambjóðandinn sem lýsir yfir framboði sínu, hinn er Sigríður Jónsdóttir, varaformaður ÍSÍ. Núverandi forseti, Ellert B. Schram, tilkynnti á síðasta þingi að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri á þessu ári.

Ólafur sendi frá sér tilkynningu vegna framboðsins í hádeginu, þar segir m.a.: „Undirritaður hefur að vel íhuguðu máli, og á grundvelli fjölda áskorana, ákveðið að gefa kost á sér til kjörs forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á Íþróttaþingi 2006.

Ég hef verið virkur meðlimur í íþróttahreyfingunni frá barns aldri, fyrst sem leikmaður í ýmsum íþróttagreinum, þ.m.t. með landsliði Íslands í körfuknattleik, síðar sem þjálfari í flestum aldursflokkum í körfuknattleik, þ.m.t. meistaraflokki karla og kvenna, og síðast við stjórnarstörf á vettvangi íþróttafélags og sérsambands.

Undanfarin 16 ár hef ég átt sæti í stjórn Körfuknattleikssambands Íslands, þar af síðustu 10 árin sem formaður. Jafnframt sit ég eins og er í stjórn og fjárhagsnefnd Evrópska körfuknattleikssambandsins, svo og í áfrýjunarnefnd Alþjóða körfuknattleikssambandsins.

Undirritaður hefur gegnt ýmsum formlegum og óformlegum trúnaðarstörfum innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Ég er kvæntur Gerði Guðjónsdóttur löggiltum endurskoðanda, og eigum við þrjú börn. Ég hef starfað sem lögmaður í hálfan annan áratug, og rek eigin lögmannsstofu, Lögmenn Hafnarfirði ehf., í félagi við þrjá aðra eigendur.“
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Starfsmenn ritaraborðs á fjórða leik KR og Njarðvíkur í úrslitum Iceland Express deildarinnar 2007. Pétur Hrafn Sigurðsson, aþjóðlegur eftirlitsdómari, er tilbúinn með flautuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið