S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.1.2006 | 11:06 | BL
Sigmundur Már strandaglópur á Kastrup
Sigmundur Már er ekki í góðum málum á Kastrup flugvelli.
Sigmundur Már flaug til Kaupmannahafnar í gær, en hann á að dæma leik í Evrópukeppni í St. Pétursborg í Rússlandi á morgun. Meðdómari hans, Jan Holmen, frá Svíþjóð er einnig á Kastrup. Ekki er ljóst hvenær þeir félagar komast til St. Pétursborgar, en samkvæmt reglum FIBA Europe þurfa þeir komast í dag, degi fyrir leik. Svo gæti því farið að aðrir dómarar yrði fengir í verkefnið og því væri um algjöra fýluferð að ræða hjá þeim félögum. Málin ættu að skýrast síðar í dag. Nú er orðið ljóst að þeir Sigmundur Már og Jan Holmen komast ekki til St. Pétursborgar fyrr en um hádegi á morgun, þriðjudag, þ.e.a.s. ef flugmenn SAS mæta til vinnu. Ekki er ljóst hvað FIBA Europe gerir í málinu og ekki útilokað að aðrir dómarar verði settir á leikinn. |