© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.1.2006 | 8:00 | BL
Íþróttir, fjölmiðlar og staðalímyndir
Nú fer að líða að lokum verkefnisins „Sports, Media and Sterotypes“ eða „Íþróttir, fjölmiðlar og staðalímyndir“ sem unnið hefur verið að síðan í nóvember 2004.

Verkefnið er fjölþjóðlegt og undir stjórn Jafnréttisstofu en samstarfsaðilar koma frá stofnunum í Noregi, Austurríki, Litháen og Ítalíu. Samstarfsaðilar verkefnisins á Íslandi eru Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, námsbraut í fjölmiðlafræði við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.

Verkefnið samanstendur af rannsókn sem gerð var í fimm Evrópulöndum á staðalímyndum og endurspeglun kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru notaðar til að hanna fræðsluefni fyrir íþróttafréttamenn, íþróttakennara og þjálfara, sem gefið er út á margmiðlunarformi. Markmið fræðsluefnisins er að hvetja til breytinga á birtingamyndum kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum með því að auka meðvitund um áhrif einsleitrar endurspeglunnar af íþróttakonum og körlum. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.jafnretti.is/sms.

Lokaráðstefna verkefnisins verður haldinn á Hótel Loftleiðum Reykjavík þann 20. janúar næstkomandi. Ráðstefnan er öllum opinn án endurgjalds, en á henni verða niðurstöður rannsóknarinnar kynntar sem og fræðsluefnið.

Hægt er að tilkynna þátttöku á netfangið jafnretti@jafnretti.is. fyrir 19. janúar. Ráðstefnan fer fram á ensku.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Páll Axel, leikmaður Grindavíkur keyrir hér að körfunni fram hjá Halldóri Erni, leikmanni Breiðabliks, í Smáranum haustið 2008. Grindavík sigraði í leiknum 61:79
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið