S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
18.1.2006 | 9:33 | BL
Ísland í 18. sæti styrkleikalista pilta
Unglingalandsliðið 2005.
Það er frábærum árangri U-18 ára landsliðsins og U-16 ára landsliðsins að þakka að Ísland er svo hátt á listanum sem raun ber vitni. U-18 ára liðið vann sér rétt til að taka þátt í A-deild Evrópumótsins næsta sumar og U-16 ára liðið, sem afrekaði slíkt hið sama sumarið 2004, hélt sér í A-deild. Þess má geta að árangur U-20 ára landsliðsins sem ekki vann leik í EM sl. sumar er þarna tekinn með í reikninginn. Ef aðeins væri horft til U-16 og U-18 ára liðanna væri Ísland enn ofar, hugsanlega í 12.-14. sæti. Listinn skiptist í þrennt, heildarstyrkleikalisti yfir öll unglingalandslið samanlagt, en Ísland er í 25. sæti þess lista. Þá er sérstakur listi fyrir yngri landslið kvenna og er Ísland í 30. sæti þess lista. Frakkland er efst á heildarlistanum með 190 stig (Ísland 61 stig) og sömuleiðis á styrkleikalista yngri kvenna með 99 stig (Ísland 15 stig). Þá er Rússland efst á styrkleikalista yngri karla með 93 stig (Ísland 46 stig). Varla þarf að geta þess að Ísland er efst Norðulandaþjóða á lista yngri karla, enda á Ísland einu liðið í A-deild í þeim flokkum. Ísland er með 46 stig á meðan Finnland er með 34 stig og Svíðþjóð 32 stig. |