S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
17.1.2006 | 15:04 | BL
Fullt út úr dyrum á unglingalandsliðsfundi
Ólafur Rafnsson formaður KKÍ flutti erindi á fundinum.
Fundurinn var afar vel sóttur og heppnaðist í alla staði mjög vel. Á honum var farið vítt og breytt yfir umsvif unglingalandsliðanna sl. sumar og þann árangur sem náðist á leikvellinum. Þá var farið yfir verkefnin sem framundan eru nk. sumar, bæði Norðurlandamót og Evrópukeppni, kostnað og fjárhagslegar forsendur, auk þerra leikstaða sem ákveðnir hafa verið að hálfu FIBA Europe. Auk fundarins um unglingamálin var KKÍ með annan fund á sama tíma í íþróttamiðstöðinni. Það var fundur körfuknattleiksdómara og hann sóttu um 25 dómarar. Þar fór dómarar yfir hin ýmsu atvik sem komið geta upp í leikjum og lögðu til lausnir. Að fundunum loknum héldu flestir þátttakendur í DHL-höllina þar sem Stjörnuleikir KKÍ fór fram fyrir fullu húsi. |