© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.12.2005 | 13:18 | BL
Æfingar hafnar á Suðureyri
Suðureyri við Súgandafjörð.
Körfuboltaæfingar eru nú hafnar á Suðureyri í glæsilegu íþróttahúsi þeirra Súgfirðinga í samvinnu íþróttafélagsins Stefnis og KFÍ, að því er segir á vef KFÍ, en markvisst er unnið að því að fjölga þeim stöðum á vestfjörðum þar sem körfubolti er stundaður.

Á fyrstu æfinguna á miðvikudaginn var mætti 21 krakki á aldrinum 6 - 13 ára og skemmtu allir sér vel og áhuginn greinilega mikill.

Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16.00 til 17.00. Ef vel gengur er möguleiki á að bæta við æfingum á laugardögum. Vonir eru bundnar við að Stefnir sendi fríðan flokk keppenda á næsta Fantamót sem verður með vorinu. Þess má geta að Fanta-deildarverkefnið færði Súgfirðingum 10 Fanta-bolta að gjöf þegar íþróttahúsið var vígt um daginn.

Þjálfari er Þórey Guðmundsdóttir en hún hefur lokið þjálfarastigum 1a, 1b og 1c í menntunarkerfi ÍSÍ. Yfirþjálfari KFÍ er Baldur Ingi Jónasson, en hann heldur utan um allt faglegt starf á vegum félagsins.

Við bjóðum Súgfirðinga velkomna í hina
sístækkandi körfuboltafjölskyldu á Vestfjörðum. (f vef KFÍ)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið