© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.12.2005 | 13:52 | BL
30 leikir beint í desember
Þá er fyrsti útsendingar mánuður NBA TV á Íslandi að baki og ekki annað hægt en að segja að þessi stöð er algjör hvalreki fyrir áhugamenn um körfubolta. Í nóvember voru 36 beinar útsendingar frá leikjum í deildinni á dagskrá stöðvarinnar.

Nú í jólamánuðinum er fyrirhugaðar 30 beinar útsendingar frá leikjum eða leikur á hverri nóttu að undanskilinni sjálfri jólaóttinni. Sem sagt leikur alla daga nema 24. desember.

Þótt leiknirnir séu sýndir beint á nóttunni hér á Íslandi hefur heyrst af mörgun sem hafa látið sig hafa það að vaka, en fleiri hafa þó notið leikjanna daginn eftir, þegar þeir hafa verið klipptir til. Einnig hefur verið gaman að sjá samantektarpakka um leiki næturinnar, bestu tilþrifin og einnig bestu leikina frá því á árum áður. Dagskrá NBA TV í desember.

Á Sýn verður NBA-leikur beint aðra nótt, 2. desember, en það verður leikur Phoenix og Dallas. Útsendingin byrjar kl. 2:00 aðra nótt.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið