© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.11.2005 | 12:56 | BL
Logi með enn einn stórleikinn
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson landsliðsmaður átti enn einn stórleikinn fyrir lið sitt Bayreuth í Þýskalandi um helgina. Hann skoraði 29 stig auk þess sem hann tók 6 fráköst í sigri liðsins gegn TV Lich og urðu lokatölur 81-87.

Logi og félagar léku á útivelli en þó var þetta gamli heimavöllur hans Loga. TV Lich er einmitt einskonar varalið Giessen 46ers, liðsins sem Logi spilaði með síðustu 2 tímabil.

Nánar á vef UMFN.

Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig í kvöld þegar lið hans Carpisa Napoli sigraði Montepaschi Siena á útivelli, 93-88. Napoli er í 4. til 6. sæti í Seria A með sex sigra í níu leikjum.

Bayern Giants Leverkusen, lið Jakobs Arnar Sigurðarsonar, tapaði fyrir EWE Oldenburg á heimvelli í þýsku Bundesligunni í gær, 101-107. Jakob Örn skoraði 9 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Nánari fréttir af þeim Jóni Arnóri og Jakobi Erni á vef KR.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið