S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
26.11.2005 | 11:36 | BL
Hundruð milljóna innspýting í breskan körfubolta
Breskur körfubolti hefur ekki verið hátt skrifaður hingað til og enska sambandið hefur átt í miklum rekstarerfiðleikum að undanförnu. Af þeim sökum tók enska landsliðið ekki þátt í B-deild Evrópukeppninnar sem lauk nú í haust og unglingaliðið hafa heldur ekki tekið þátt í EM af fullum krafti. En nú eru horfur á að betri tímar séu framundan með tilkomu Ólympíuleikanna. Breska landsliðið hefur einu sinni áður tekið þátt í Ól. Það var árið 1948 þegar leikarnir voru síðast haldnir í London, en þá tapaði liðið öllum fimm leikjum sínum. Þá hafa nokkrir þekktir leikmenn lýst yfir áhuga á að leika með liðinu á Ól. Luel Deng, leikmaður Chicago Bulls, er þar frestur í flokki, en hann er uppalinn í Londun og með breskt vegabréf, þrátt fyrir að vera fæddur í Súdan. Deng ætlar einni að sannfara liðsfélaga sinn í Bulls, Ben Gordon sem fæddur er í London, um að gera slíkt hið sama. Þar að auki eru í dag fjöldi bresk ættaðra leikmanna í bandarískum mennta- og háskólum, sem væntanlega verða á hátinda ferils síns eftir 7 ár. Nýjasta, en ekki hvað sísta trompið fyrir breska körfuboltann, er yfirlýsing Steve Nash þess efnis að hann myndi gjarnan vilja koma nálægt þessu verkefni á einhvern hátt. Nash, sem er fæddur í S-Afríku, en á enska pabba og velska móður og hefur breskt vegabréf, er sem kunnugt er kanadískur ríkisborgari. Nash er 31 árs og lék með kanadíska landsðinu á Ólympíuleikunum á Syndney 2000 þar sem liðið komst í 8-liða úrslit. Hann hefur hefur áhuga á að koma nálægt þjálfun breska liðsins á einhvern hátt 2012, en þá verður hann að öllum líkindum hættur að leika sjálfur. Nash er mikill áhugamaður um knattspyrnu og heimsækir England á hverju sumri með fjölskyldu sinni og fylgist þá grannt með uppáhaldsliðinu sínu, Tottenham Hotspur. Nánar á vef FIBA. |