© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.9.2005 | 14:57 | bl
Útsendingar frá NBA TV hefjast senn
Útsendingar NBA TV hefjast á Digital Íslandi laugardaginn 15. október. Þetta eru góðar fréttir fyrir alla áhugamenn um körfubolta en leikmenn í NBA eru þeir bestu í heimi.

NBA TV sýnir hundruð leikja í beinni útsendingu auk ótal þátta um körfubolta. Ráðgert er sýna frá 170 leikjum á komandi keppnistímabili en deildin hefst í byrjun nóvember. Til viðbótar verða sýndir tæplega 100 leikir frá úrslitakeppninni auk leikja í kvennadeildinni, WNBA.

Fram undan er því sannkölluð körfuboltaveisla í vetur en NBA deildin hefst 1. nóvember þar sem allar helstu körfuboltastjörnur veraldar verða í eldlínunni. Í þeim hópi eru kappar eins og Tim Duncan, Shaquille O’Neal, Dwyane Wade, Richard Hamilton, LeBron James og Kobe Bryant.

NBA TV verður í Sportpakkanum á Digital Íslandi. Rétt er að taka fram að umfjöllun Sýnar frá NBA verður með sama sniði og hefur verið.

(Fréttatilkynning frá 365 ljósavakamiðlum)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrst körfuboltalið íslenskra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli, Vikings, árið 1950.  Aftari röð frá vinstri: John Smith, Guðmundur Pétursson, Hörður Sumarliðason, Kristján Júlíusson, Friðrik Bjarnason og Hal Cromie.  Fremri röð frá vinstri: Hjálmar Guðmundsson, Pétur Guðmundsson og Ingi Gunnarsson.  John og Hal voru starfsmenn Lockheed og þjálfuðu íslensku strákana.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið