
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 16.8.2015 | 7:30 | U16 KK | Yngri landslið 
  Lokaleikurinn hjá U16 á EM í Búlgaríu gegn Rúmeníu í dag 
   
    Íslenska liðið var greinilega í mjög sterkum riðli þar sem öll liðin sex úr riðlinum eru að keppa um efstu sætin í 1-8, 9-16 og svo 17-24. Eistar og Pólland leika til úrslita í dag en þessi tvö lið tryggðu sér í gær sæti í A-deild að ári í U16 en Svíþjóð tapaði fyrir Póllandi 70-63 í hörkuleik og Eistar lögðu Slóvaka örugglega. Lið Eistlands og Póllands eru taplaus í mótinu og verður gaman að fylgjast með úrslitaleik þeirra í kvöld. Íslenska liðið tapaði fjórum af fimm leikjum sínum í riðlinum, en unnu báða leiki sína í milliriðli gegn Hvítrússum og Lúxemborg. Í gær sigruðu þeir svo spræka Íra og geta endað mótið í dag með fjórða sigurleiknum í röð. Til þess þarf liðið í heild að eiga toppleik í öllum stöðum og undir það eru menn að búa sig. Hákon Örn Hjálmarsson er stigahæsti leikmaðurinn á mótinu með 18.1 stig að meðaltali í leik. Nökkvi Már Nökkvason er 9 með 14.1 stig að meðaltali í leik. Nökkvi er í öðru sæti yfir þriggja stiga nýtingu með 44.6% nýtingu 56 skot tekin og 25 niður. Sá sem er efstur hefur tekið 8 skot og sett niður 5 og því með 62.5% nýtingu. Hákon Örn er tólfti með 37.9% nýtingu í 3ja. Gabríel Sindri Möller er fjórði hæðsti í stoðsendingum með 3.9 í leik. Fararstjórnin er í höndum Kristjáns E. Möller og er hann að standa vaktina hérna í sinni fyrstu ferð með miklum sóma og mætti halda að hann hafi verið í þessu áður. Mikill fengur fyrir hópinn að hafa fengið þennan sóma kappa með okkur í ferðina. Sjúkraþjálfarinn Haukur Már Sveinsson hefur haft frekar lítið að gera sem betur fer, annað en að hnoða þjálfarateymið og hefur fallið vel í hópinn.  |