Valur Old-Boys tekur þátt í Icelandair Copenhagen Cup 2005 í Grøndal Centret í Kaupmannahöfn, en Kaupmannahafnarmótið er haldið annað árið í röð. Icelandair er styrktaraðili mótsins sem fer fram laugardaginn 17. september nk. Liðin sem taka þátt auk Vals eru, Mjúkir Varnarmenn, Árvakur og gestgjafarnir (og núverandi meistarar) IF Gudrun.
Meðal kappa í Old-Boys liði Vals eru ma. Torfi Magnússon fyrrum landsliðsmaður og landsliðsþjálfari og Hannes Birgir Hjálmarsson fyrrum úrvalsdeildarleikmaður og núverandi framkvæmdastjóri KKÍ.