S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.8.2005 | 16:06 | bl
Æfingabúðir á vestfjörðum um næstu hlegi
Yfirþjálfarar eru þeir Baldur Ingi Jónasson frá KFÍ og Brynjar Þór Þorsteinsson frá Herði á Patreksfirði. Þeir munu ásamt fleiri þjálfurum stjórna dagskrá æfingabúðanna. Farið verður í helstu undirstöðuatriði körfuknattleiks og keppt verður í liða og einstaklingsgreinum. Kostnaður er kr. 5.000 á mann og veittur er 50% systkynaafsláttur. Í boði er gisting í menntaskólanum fyrir þá sem það þurfa og þurfa þeir sem nýta sér það að taka með sér svefnpoka. Innifalið í gjaldinu er fæði bæði á laugardag og sunnudag. Taka þarf fram við skráningu hvort óskað sé gistingar. Skráning fer fram á netfanginu kjons@simnet.is og þarf kennitala að fylgja með. Hægt verður að greiða fyrir búðirnar við upphaf þeirra, en einnig má leggja inn á reikning unglingaráðs KFÍ 556-26-8555 kt. 651093-2449. Nánari upplýsingar veitir Karl Jónsson á netfanginu kjons@simnet.is eða í heimasíma 456 5515 á milli kl. 20 og 22 á kvöldin. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi á miðvikudagskvöldið 31. ágúst. |