© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.8.2005 | 20:09 | HBH
Ísland vann Holland 82-75
Leik Íslands og Hollands í Groningen er lokið með 82-75 sigri Ísland. Leiknum var framlengt, eftir að staðan var jöfn eftir venjulegan leiktíma, 71-71. Ísland vann því framlenginguna 11-4.
Leikurinn var frekar jafn en Hollendingar náðu 12 stiga forskoti í báðum hálfleikum. Síðari hálfleikur var ágætlega leikinn af beggja hálfu en Hollendingar alltaf aðeins á undan. Íslenska liðinu tókst að jafna 71-71 er um hálf mínúta var eftir og Hollendingar héldu boltanum það sem eftir lifði af venjulegum leiktíma og tókst ekki að skora.
Í framlengingunni var íslenska liðið sterkara og náði að tryggja sér sigur 82-75.
Sigurður Ingimundarson, landsliðs var að vonum ánægður með sigrana gegn Hollandi: "Strákarnir stóðu sig allir vel og var baráttan í liðinu til fyrirmyndar. Dagskipunin var að vinna báða leikina og það tókst með ágætum. Við keyrðum á 12 leikmönnum í fyrri hálfleik og 11 í seinni og var ánægjulegt að sjá að leikur liðsins er í góðum málum sama hverjir eru inn á leikvellinum."

Helstu tölur íslensku leikmannanna:
Sigurður Þorvaldsson. 14 stig, 3 fráköst, 1 stolinn bolti, Jón Arnór Stefánsson, 13 stig, 6 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolnir boltar, Logi Gunnarsson, 10 stig, 4 fráköst, 3 stoðs., Magnús Þór Gunnarsson 8 stig, 3 fráköst, 1 stoðs, 2 stolnir boltar, Friðrik Stefánsson, 8 stig, 7 fráköst, 1 stolinn bolti, Hlynur Bæringsson, 6 stig, 10 fráköst, 1 stolinn bolti.Jakob Sigurðarson, 6 stig, 1 frákast, Arnar Freyr Jónsson, 6 stig, 2 stoðs, 1 stolinn bolti, Jón N. Hafsteinsson, 5 stig 2 fráköst, 1 stolinn bolti, Helgi Magnússon, 4 stig, 1 frákast, Gunnar Einarsson, 2 stig,Egill Jónasson, 2 stig.

Byrjunarlið Íslands: Jón Arnór Stefánsson, Magnús Þór Gunnarsson, Logi Gunnarsson, Hlynur Bæringsson og Friðrik Stefánsson.

m.t.t. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur með 14 stig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Marel Guðlaugsson náði stórum áfanga í leik með Haukum gegn ÍR þann 3. mars 2007 að verða leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar karla fyrr og síðar.  Hann lék þá sinn 410. leik í deildinni og fór þar með fram úr Guðjóni Skúlasyni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið