S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
1.8.2005 | 23:13 | EÁJ | Yngri landslið
Strákarnir komnir til Leon - leikið gegn Lettum á morgun, þriðjudag
Fyrsti leikurinn er svo annað kvöld, kl 20.30 að staðartíma eða kl 18.30 að íslenskum tíma og eigum við von á því að leikurinn verði beint á heimasíðu mótsins. Fyrsti andstæðingurinn í milliriðlinum er Lettland og verður um hörkuleik að ræða. Lettar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Serba í riðlakeppninni og töpuðu svo naumlega með 2 stigum gegn núverandi Evrópumeisturum Frökkum sem hafa reyndar enn sem komið er ekki tapað leik. Þeir hafa innan sinna raða tvo hávaxna bakverði sem hafa farið mikinn í mótinu til þessa og verður verðugt verkefni að halda aftur af þeim. Á miðvikudag verður leikið gegn Póllandi og er sá leikur kl 16.15 að íslenskum tíma og svo á fimmtudag er leikið gegn Slóveníu kl 18.30 að íslenskum tíma. Annars er gott hljóð í hópnum og við sendum bestu kveðjur heim. Af Sigmundi Herbertssyni FIBA dómara er það að frétta að hann átti afmæli í dag kallinn. Simmi hefur verið að dæma hörkuleiki í þessu móti, síðast leik Tyrkja og Úkraínu sem fór í framlengingu en þessi tvö lið urðu efst í D riðli. Óskum Simma til hamingju með daginn. |