S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
3.8.2015 | 8:50 | Bryndís | Yngri landslið
U18 kvenna - 20 stiga tap gegn Grikklandi
Í seinni hálfleik mættu grísku stelpurnar af miklum krafti og á tímum of miklum krafti þar sem Þóra steinlá eftir olnbogaskot frá grískum leikmanni sem sveiflaði olnboganum ótt og títt í leiknum og eingöngu heppni að fleiri íslenskar stelpur lágu ekki eftir í gólfinu. Eftir þriðja leikhluta var staðan orðin 27-48 fyrir Grikklandi. Íslensku stelpurnar sýndu mikinn karakter í fjórða leikhluta og fóru að ýta meira frá sér og unnu þann leikhluta 16-15 og lokatölur voru því 43-63. Atkvæðamestar í liði Íslands voru Sylvía Hálfdánardóttir með 12 stig og 11 fráköst og Dagný Lísa Davíðsdóttir með 10 stig og 3 fráköst. Leiktíminn dreifðist vel milli leikmanna og fengu allar stelpurnar góða reynslu af því að spila á móti mjög líkamlega sterku liði. Er þetta sérstaklega mikilvægt þar sem 8 leikmenn í liðinu eru á yngra ári og því líklegt að einhverjar þeirra mæti aftur að ári í sömu keppni. Næsti leikur liðsins er í dag kl.15:00 að íslenskum tíma gegn Rúmeníu sem eru ósigraðar í riðlinum og vel studdar af áhorfendum enda fer keppnin fram á þeirra heimavelli. Við minnum á lifandi tölfræði á heimasíðu Fiba Europe. |