© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.7.2005 | 12:28 | Ingi | Yngri landslið
Úrslitastund á morgun
Strákarnir í U-18 leika gegn Finnum á morgun klukkan 17:15 að íslenskum tíma í undanúrslitaleik B-keppni yngri landsliða 18 ára og yngri.

Leikurinn í gær tók mikið á og var mikil spenna í lokin. Austurríkismenn biðu spenntir eftir úrslitum úr leiknum, en þeir voru heldur súrir þegar að strákarnir gengu til búningsherbergja með miklum látum.

Við nýtum okkur fríið í dag vel, þeir sem hafa ekki spilað mikið æfa í dag í Koniarenhöllinni, flestir leikmenn eru lemstraðir en það verður allt í góðu lagi á morgun. G. Jr. Lee leikmaður Finna meiddi sig lítillega gegn Hollendingum og lék ekki í gær, en hann mun leika gegn okkur á morgun.

Með sigri á morgun gæti Ísland átt lið í A-keppni í bæði 16 og 18 ára landsliðum drengja, sem í raun er lygilegt. Stemmningin í hópnum er mjög góð og eru menn stemmdir fyrir morgundeginum.

Leikjaniðurröðun á morgun er eftirfarandi:
10:30 Austurríki (þriðja í E) - Portúgal (fjóðra í F)
12:45 Bosnía (fjórða í E) - Holland (þriðja í F)
15:00 Úkraína (efstir í E) - Ungverjaland (annað sæti í F)
17:15 Ísland (aðrir í E) - Finnar (efstir í F)

Með kærri kveðju frá Ruzomberok,
Ingi Þór
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
George Byrd, Skallagrími, stangar Grindvíkinginn Davíð Pál Hermannsson í 2. leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar 19. mars 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið