S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
16.7.2005 | 19:54 | Ingi Thor/HSJ
Komið að úrslitastundu í Ruzomberok
Á morgun leikum við síðasta leikinn i C-riðli og það gegn Finnum. Finnar hafa unnið báða sína leiki, gegn Makedoníu og Svíum. Til þess að komast uppúr riðlinum þurfum við að vinna Finna á morgun en það er ekki bara svo einfalt.
Ef að Svíar vinna Makedoníu á morgun, þurfum við að vinna Finna með 6 stigum eða meira. Ef að Makedoníustrákar vinna Svía þá nægir sigur gegn Finnum. Allt þetta skýrist a morgun. Það var allt annað lið sem mætti til leiks gegn Makedoníu. Árni Ragnarsson nýtti tækifærið sitt vel í byrjunarliðinu og skoraði 17 stig og tók 12 fráköst. Brynjar Þór var stigahæstur með 20, Pavel var með 15 stig og 16 fráköst ásamt því ad gefa 7 stoðsendingar. Ólafur Torfa skoraði 11 stig og tók 9 fráköst. Öllum drengjunum líður vel og eru allir i góðu standi. Með DOPRI kveðju frá Slóvakíu, Björn og Ingi Þór |