S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
13.7.2005 | 19:51 | Ingi og Bjorn
Menningarsjokk í Slóvakíu!
Mikið samskiptaleysi er í gangi hér og er stúlka sem er okkar guide búin að bjarga heilmiklu en það er langur vegur frá að við séum sáttir, það nýjasta er að æfing sem að við áttum að hafa í fyrramálið var felld niður og þurfum við að borga 65€ fyrir salinn og rútu! Annars er mannskapurinn í góðu lagi og æfðum við í dag í höllinni sem leikið verður í. Verðlagið á hlutum hér í Slóvakíu er skondið og mjög ódýrt að fá sér að borða hérna. Fyrsti leikurinn okkar er gegn Svíum á föstudag klukkan 10:30 að íslenskum tíma og segja mótshaldarar að það verði lifandi statistik á netinu, en Rúnar á skrifstofu KKÍ er hér með settur í það að finna slóðina. Heimasíða mótsins Það er ekki mikil tækni hér á hótelinu og vitum við ekki hversu miklir möguleikar eru að setja inn reglulega fréttir frá okkur, en við gerum að sjálfsögðu okkar besta. |