S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.7.2005 | 13:31 | Gylfi
Frí í dag, stóri leikurinn á morgun
Allar líkur eru á því að Ungverjar vinni "hinn riðilinn" eftir sigur á heimamönnum í gær. Í "okkar riðli" eru Pólverjar og Georgíumenn líklegastir, bæði lið taplaus. Íslendingar eiga eftir að leika gegn Írum á morgun og Finnum á miðvikudag. Finnar eru skæðir, unnu Slóvaka í gær eftir fremur slakan dag þar áður. Stóri leikur íslenska liðsins er gegn Írum. Á æfingu rétt áðan, frá 13.00-14.00 (10-11 að íslenskum tíma) fór Bojan vel í gegnum leikkerfi Íranna og síðan mun liðið skoða búta úr leiknum gegn Póllandi á myndbandi en sá leikur er gott dæmi um það hvernig íslenska liðið getur leikið best, og verst. Mikill hugur er í strákunum og þeir eru ákveðnir í því að láta slysið frá því í seinnihálfleik í gær aldrei endurtaka sig. Segja má að það hafi verið lán í óláni að þetta gerðist gegn svo hrikalega sterku liði, því enginn reiknaði með sigri Íslands. Allt þessu líkt fer inn á reynslubankann. |