S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.6.2005 | 15:25 | bl
Vertíð yngri landsliðanna í Evrópu að hefjast
Ísland sendir fimm landslið í Evrópukeppni af sex mögulegum, en tekur ekki lengur þátt í Promotion cup. Mótin hefjast fljótlega í júlí og það verður U-20 ára landslið karla sem fyrst heldur til keppni. Liðið tekur þátt í B-deild Evrópumótsins, en leikið verður í Varna í Búlgaríu. Þjálfari liðsins er Bojan Desnica. Síðan tekur hver liðið við af öðru uns U-18 ára lið kvenna leikur í B-deildinni í ágúst. Eina unglingaliðið frá Norðurlöndum sem leikur í A-deild, er U-16 ára lið Íslands sem keppir Í leon á Spáni 29. júlí - 7. ágúst. Nánar verður fjallað um hver lið hér á vefnum þegar nær dregur Evrópukeppni hvers liðs, en fyrst verður sagt frá U-20 ára liðinu sem heldur áleiðis til Búlgaríu 6. júlí nk. mt: Fjögur af þeim fimm liðum sem Ísland sendir í Evrópukeppni í sumar. |