S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
8.6.2005 | 11:02 | bl
Skráningu að ljúka í golfmótið
Erindi í mótið eiga allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Leiknar verða 18 holur og keppt í höggleik án forgjafar og punktakeppni þar sem gefin hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Þetta er í áttunda sinn sem mótið fer fram og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt, voru á milli 50 og 60 í fyrra. Allir verða ræstir út í einu svo keppendur ljúki leik á svipuðum tíma og geti því átt góða stund í golfskála að leik loknum og rifjað upp gamlar stundir. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni mótsstjóra í síma 897-6279, netfang: rikhardur@sfs.is Skráningu lýkur kl. 22:00 fimmtudaginn 9.júní. |