© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.6.2005 | 16:05 | bl
Hræðilegur fyrri hálfleikur banibitinn gegn Kýpur
Íslenska karlalandsliðið tapaði fyrir Kýpur á Smáþjóðaleikunum í Andorra nú rétt áðan, 56-80. Slæm byrjun varð íslenka liðinu að falli, en liðið fór ekki að leika af eðlilegri getu fyrr en í þriðja fjórðungi.

Fyrri hálfeikur er einfaldlega það slakasta sem sést hefur til landsliðsins í langan tíma. Liðið skoraði ekki stig fyrr en sjö mínútur voru liðnar af leiknum, sem hlýtur að vera met. Þá hafði Kýpur gert 16 stig í röð. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 7-21. Skorið í öðrum fjórðungi var 14-25 og staðan því 21-46 í hálfleik. Mest hefði Kýpur 27 stig forystu í leiknum.

Íslenska liðið vaknaði loks til lífsins í þriðja fjórðungi, skoraði ma. tíu stig í röð og vann fjórðunginn 21-11 (42-57). Aftur hallaði undan fæti í lokafjorðungnum sem kýpur vann 14-23 og leikinn 56-80 eins og fyrr segir.

Það ætlar að ganga illa að leggja Kýpur að velli á Smáþjóðaleikum. Ísland nær aldrei að sýna sitt rétta andlit gegn þeim. Vonandi verður þó hægt að kveða þennan draug niður hið fyrsta og ekki seinna en á næstu leikum.

Hlynur Bæringsson var stiga- og frákastahæstur í íslenska liðinu með 15 stig og 12 fráköst. Magnús Þór Gunnarsson kom næstur með 14 stig.

Ísland þarf að sigra San Marínó á morgun til að tryggja sér silfurverðlaun hér á leikunum. Sá leikur hefst kl. 13.00 að íslenskum tíma.

Tölfræði leiksins.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Rúnar Gíslason, dómari, bíður þess að boltinn komi niður eftir vítaskot frá Guðmundi Ásgeirssyni leikmanni Grindavíkur.  Myndin er tekin í leik Grindavíkur og Þórs Ak, 16. desember 2001.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið