© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.5.2005 | 8:23 | bl
Spennandi verkefni framundan í Andorra
Landslið karla og kvenna komu til Andorra í gærkvöldi eftir langt ferðalag. Flogið var til Barcelona, en ÍSÍ var med leiguflug á vegum Icelandair fyrir íslenska hópinn, sem telur allt í allt á þriðja hundrað manns. Sídan var farið med rútu upp í fjöllin til Andorra.

Liðin æfa í dag og búa sig undir leikina sem hefjast á morgun, mánudag. Í kvöld kl. 21.00 að staðartíma er svo setningarathöfn Smáþjóðaleikanna á aðalleikvanginum hér í Andorra. Búist er við rigningu hér í dag, en í gæ var sól og 25 gráððu hiti. ÍSÍ-menn eru þó vid öllu búnir og eru með regnstakka klára á allan mannskapinn komi dropi úr lofti í kvöld.

Sú breyting varð á karlalandsliðinu að reynslumesti leikmaður liðsins, fyrirliðinn Friðrik Stefánsson, gat ekki farið í ferðina vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu. Þar er sannarlega skarð fyrir skyldi, en þrátt fyrir það eru allir ákveðnir í að gera sitt allra besta hér á leikunum.

Allir aðrir eru heilir og biðja ad heilsa heim!
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lárus Dagur Pálsson fyrirliði Tindastóls tekur við Eggjabikarnum af Jóni Pétri Líndal frá Félagi eggjaframleiðanda en Tindastóll sigraði í keppninni árið 1999. Ólafur Rafnsson formaður KKÍ er á milli þeirra en í baksýn eru, frá vinstri, Ísak Einarsson, Helgi F. Margeirsson og Shawn Myers.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið