S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.5.2005 | 9:36 | bl
Yfirlýsing vegna lyfjamáls
Stjórn KKÍ lýsir trausti á viðeigandi eftirlitsaðilum, s.s. lyfjaeftirlitsnefnd og lyfjaráði ÍSÍ. Tekin hafa verið allmörg sýni í keppni í körfuknattleik á yfirstandandi keppnistímabili og hefur verið leitt í ljós að eftirlitið er skilvirkt. Stjórn KKÍ mun vinna náið með viðeigandi aðilum til þess að leiða mál þetta til lykta, og vinna áfram sameiginlega gegn lyfjamisnotkun innan hreyfingarinnar. Orsakir lyfjamisnotkunar geta verið mismunandi, en þótt vera kunni að misnotkun eigi sér félagslegar orsakir fremur en íþróttalega árangurstengdar, þá er engu að síður um að ræða brot á reglum íþróttahreyfingarinnar – sem eigi er unnt að líta framhjá, og ber því að refsa með viðurlögum lögum samkvæmt. Stjórn KKÍ |