S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.4.2005 | 9:59 | bl
Naumur sigur heimsliðsins
Það var mikill heiður fyrir Jón Arnór að taka þátt í lþessum leik, hvað þá að vera í byrjunarliðinu. Þetta sýnir glöggt á hvaða stall Jón Arnór er kominn í alþjóðlegum körfuknattleik. Shammond Williams úr heimsliðinu var valinn maður leiksins, en Leikurinn var sýndur beint á Sýn með aðstoð DHL og Lýsingar og eiga þessir aðilar þakkir skyldar fyrir að gera landsmönnum kleift að sjá þennan viðburð. Leikurinn sjálfur var ágæt skemmtun, en heimsliðið hafði leikinn í hendi sér nær allan tímann. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur lyftust þó aðeins upp úr sætum sínum á lokamínútunum þegar Jón Arnór minnkaði muninn í tvö stig 88-90 með þriggja stiga körfu, en lengra komust þeir ekki. Störnuleikurinn er gott framtak hjá FIBA Europe og vonandi halda menn þar á bæ áfram að sinni þróunar og markaðsvinnu. Skipulagning leiksins eða réttara sagt alls viðburðarins var þó nokkuð sérstök. Dagskráin var í lengra lagi og tímasetningar atriða voru vægast sagt óvenjulegar. Eins voru sjónvarpsmennirnir á Kýpur ekki alveg með á nótunum. |