S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
1.4.2005 | 10:21 | bl
Erlendir útsendarar fylgjast með úrslitaeinvíginu
KKÍ hefur haft milligöngu um að útvega miða á leikina í einvíginu fyrir þessa erlendu "njósnara". Umboðsmaður sem hafði samband við skrifstofu KKÍ sagði að eftir að Keflavík sigraði franska liðið Reims í tvígang með miklum mun hefði hann fengið fjölda símtala frá þjálfurum þekktra liða. Þeir hafi viljað spyrjast fyrir um leikmenn þessa óþekkta liðs og hvort þeir væru með lausa samninga. Þeir hafi síðan orðið forviða þegar þeim var sagt að liðið væri áhugamannalið. Ekki er ólíklegt að í kjölfarið muni einhverjir leikmenn fá atvinnumannatilboð og eins munu "njósnararnir" ræða við Sigurð Ingimundarson þjálfara Keflavíkur. Varnarleikur Keflavíkinga hefur að undanförnu verið stórkostlegur og hinir erlendu aðilar segjast vilja fá að vita allt hvað Keflavíkingar sé að gera í vörninni. Sigurður mun funda með hinum erlendu gestum eftir hádegi í dag 1. apríl og verður fundurinn haldinn í sal Sláturfélags Suðurlands. Einnig hafa borist fyrirspurnir um leikmenn Snæfells liðsins sem gert hafa garðinn frægan með íslenska landsliðinu að undanförnu. Vaskleg framganga þeirra og vígalegt útlit hefur vakið athygli og þykja þar sannir víkingar á ferð, sem margir vilja hafa í sínu liði. mt: Keflavíkingar hafa beitt óvenjulegum aðferðum í varnarleik sínum að undanförnu. Mynd: Vísir.is |