S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
10.3.2005 | 14:44 | bl
Háspennuvertíðin hefst í kvöld
Í ljósi þess hve deildarkeppnin í vetur hefur verið jöfn er ekki ólíklegt að úrslitakeppnin verði æsispennandi. Ljóst er að liðin mæta vel undirbúin til leiks og allt verður lagt í sölurnar til að komast áfram í næstu umferð. Lítið má út af bregða strax í 8-liða úrslitunum, því þar þarf aðeins að vinna tvo leiki til að komast í undanúrslit. Lið sem t.d. tapar fyrsta leik á heimvelli er komið með bakið upp að veggnum og verður að vinna næsta leik á útivelli til að halda sér inni í keppninni. Það er því tilhlökkun í upphafi háspennuvertíðarinnar. Ljóst er að heimavallarréttindi vega þungt í keppninni, en þó hafa verið undantekningar frá því. Óskar Ó. Jónsson tölfræðisnillingur hefur tekið saman skemmtilega tölfræði um úrslitakeppnina og fl. svo topp tíu lista frá deildarkeppninni í vetur. Í samantekt Óskars um þjálfaranna sem leiða lið sín inn í úrslitakeppnina í ár kemur fram að Sigurður Ingimundarson er þeirra sigursælastur með 67,9% vinningshlutfall. Tölfræðipakki Saga úrslitakeppninnar Á vefjum félaganna er að finna skemmtilega umfjöllum um keppnina. T.d. hefur vefur KR fengið nokkra kunna kappa til að spá í spilin og á vef Snæfells er viðtal við stuðningsmann Snæfells nr. 1. Þá hefur vefur Keflavíkur gert samantekt á viðureignum Keflavíkur og Grindavíkur í úrslitakeppni. |